Eye of the Tiger

Eye of the Tiger

22.02.2007 22:52:56 / tigurinn

What Happened the Year You Were Born ?




In 1980 (the year you were born)



Jimmy Carter is president of the US



President Carter announces punitive measures and embargos against the USSR in retaliation for the Soviet invasion of Afghanistan



Mount St. Helens in Washington state erupts in a violent blast estimated to be 500 times as powerful as the Hiroshima atomic bomb



Ronald Reagan is elected the 40th US president in a sweeping victory



US Representative Michael O. Myers is expelled from the House for his role in the Abscam scandal



Hewlett-Packard announces release of its first personal computer



Microsoft announces their version of UNIX, Xenix



Christina Ricci, Chelsea Clinton, Venus Williams, Jessica Simpson, Macaulay Culkin, and Jake Gyllenhaal are born



Philadelphia Phllies win the World Series



Pittsburgh Steelers win Superbowl XIV



New York Islanders win the Stanley Cup



The Empire Strikes Back is the top grossing film



"Lady" by Kenny Rogers spends the most time at the top of the US charts



U.S. viewers get caught up in the "Who Shot J.R.?" cliff hanger on the soap opera series, Dallas, which is solved on a November 21 episode, drawing a record numbers of viewers


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 22:35:17 / tigurinn

What Do Your Dreams Mean ?




What Your Dreams Mean...



Your dreams seem to show that you're a bit disturbed... but nothing serious.



You may have a problem you're trying to work out in your sleep.



Your dreams tend to reflect your insecurities.



You have a very vivid imagination and a rich creative mind.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 22:33:30 / tigurinn

Would You Choose Love or Money ?




You Would Choose Love



Money may buy a little happiness, but not the happiness of true love.

You rather have a true soulmate than a private jet.

And while many people may claim they would choose love too...

You're one of the few who would really do it.


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 22:28:37 / tigurinn

Are You a Thrill Seeker ?




You Are Adventurous... Sometimes



You like an adrenaline rush as much as the next person. You like your thrills in small doses.

You're generally pretty calm and level headed. But sometimes you have to go wild and have a crazy adventure.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 22:24:00 / tigurinn

Are You Homophobic ?




You Are 19% Homophobic



You're open minded, tolerant, and accepting.

And you're not homophobic in the least :-)


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 16:53:25 / tigurinn

Nýtt MSN

Í ljósi þess að mikla breytingar munu eiga sér stað í mínu lífi núna á næstu mánuðum þá ákvað ég svona að byrja þær rólega með því að breyta loksins um MSN og hætta með þetta djöfulsins thi1098 drasl....

Nýja MSN-ið mitt er danni.tiger@gmail.com

Ég mun ennþá nota hitt MSN-ið í einhvern tíma en mér þætti vænt um ef þið mynduð adda hinu inn hjá ykkur við tækifæri.

Þar að segja þið ykkar sem viljið getað talað við mig á MSN.

Takk fyrir kærlega

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 19:50:45 / tigurinn

- Jafnrétti -

Ég var að lesa moggann í gær og sá þar frétt sem að mér fannst svoldið spaugileg. Hún var í sjálfu sér ekkert spaugileg en mér fannst hún bara fyndin þegar að ég fór að hugsa um hana svona út frá jafnréttissjónarmiði og það að konur séu sífellt að berjast fyrir jöfnum kjörum og jöfnu launum sem er allt gott og blessað.

En það sem þessi frétt var um var að tvær konur höfðu verið teknar í Leifstöð fyrir að reyna að smygla inn einhverju magni af kókaíni til landsins. Taka má fram að þessar konur voru á fimmtugsaldri og þær voru ekki góðkunningjar lögrelguna rað sögn Eyjólfs Kristjánssonar, fulltrúa lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Þarna finnst mér vera komnar konur sem ættu að fara á forsíðu Mannlífs, Nýs Lífs og allra hinna konublaðanna sem gefin eru út hér á landi.

Ástæða þess að mér finnt þetta er sú að þetta eru konur sem eru að riðjast inná braut sem að hefur nær eingöngu verið stjórnað af karlmönnum, þær eru frömkvöðlar kvenna á þessu sviði. Ég persónulega man ekki síðast hvenær ég frétti af konu fremja einhverj alvarlegan glæp. En maður heyrir um það nær daglega þegar að einhverjir ólánsamir karlfuskar eru teknir með hitt og þetta dópið í tollinum.

Mér finnst að ef konur ætla að vera samvkæmar sjálfum sér þá ættu þær að gera þessu konum hátt hundir höfði því að þær eru ekki að fara hefðbundnar leiðir eins og allar hinar kvennréttindabaráttukonurnar, fara á alþingi, gerast forstjóri, stofna fyrirtæki eða hvað eina sem þær gera til að komast með tærnar þar sem karlmenn áður höfðu hælana. Þessar konur eru að riðjast inná braut sem að engar aðrar konur vilja koma nálægt þó svo að í þessari starfgrein séu nær eingöngu karlar.

Er það ekki takmark samtaka eins og Feminista félagsins og annara slíkra að jafna hlut karla og kvenna í öllu og engu? Er þá ekki gott að jafna hlut þeirra í glæpsamlegri starfsemi líka?

Ég meina ef við eigum öll að vera jöfn er þá ekki rétt að við séum jöfn á öllum sviðum en ekki bara einhverjum tilteknum sem að kvennréttindabaráttan ákveður.

Nei ég bara spyr !!


e.s.
Verð að taka eitt fram því ég var að kíkja inná mbl.is og sá þar tvær fréttir sem að sýna það að konur eru eitthvað að taka sig á í glæpastarfseminni. Önnur var um konu sem grunuð er um íkveikju á Hringbraut og hin um konu sem verið var að dæma fyrir að vera með töluvert magn fíkniefna á heimili sínu.

En betur má ef duga skal

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 20:36:33 / tigurinn

www.tigurinn.tk DAUTT

Ég er eiginlega búinn að taka þá ákvörðun að færa mig bara alfarið inná bloggar.is svæðið og því bið ég ykkur sem að kíkið af og til inná þessa síðu bara vinsamlegast um að fara þangað inn því þar getið þið lesið allt ruglið sem að ég læt út úr mér.

Slóðin er:

http://tigurinn.bloggar.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 13:35:37 / tigurinn

Skrítið en skemmtilegt

Hvað í andskotanum er eiginlega að gerast með þetta helvítis blog.central drasl.... þetta er allt bara í einhverju rugli :evil:

En ég nenni ekki að spá í því vegna þess að ég skellt mér á smá skrall í gær og aldrei þessu vant þá ákvað Gísli að vera bara heima og fór ég því einn að hitta hina skipinemana á meðan Gísli sat heima að sötra rauðvín og bölva tölvunni sinni sem er víst alveg að fara að syngja sitt síðasta :$

Það var nú þrautinni þyngri að finna hvar þau öll voru niðrí bæ en það tókst eftir miklar símhringingar og mikið labb en það átt svo sannarlega eftir að borga sig og enduðum við á fyllerí til 5 í morgun.

Ég nenni ekki að fara að skrifa mikið meir og ætla ég því bara að skella inn nokkrum myndum sem getað talað sínu máli.
Damian, David og Fabian nokkuð hressir á því með bjór á fyrsta staðnum sem við fórum á.












Ég og Damian hressir á NEBE þar sem að Damian nennti ekki að dansa af því að honum fannst tónlistin ekki nógu góð og ákváðum við því að fara á einhvern annan stað þar sem að hann gæti dansað.... og átti hann svo sannarlega eftir að DANSA!!!




Hérna sést upphafið af dansinum hans Damian sem átti eftir að standa í ansi langan tíma og hafa mjög skemmtilegar afleiðingar í för með sér ;)















Þetta eru sem sagt þær afleiðingar sem að ég var að tala um og get ég sagt ykkur að öllum inná þessum stað fannst þetta atvik mjög svo skemmtilegt, veit ekki hvort það var sökum þess að Damian var hálfnakinn eða af því að gellan fyrir aftan hann var það líka en engu að síður fannst mönnum þetta mjög skondið :D











Á meðan öllu þessu stóð þá sátum ég, Tomaz, David og Fabian bara að svambli og skemmtum okkur prýðilega yfir því að prufa hina ýmsu kokteila sem að í boði voru þarna á þessum stað.










Þetta er svo það síðasta sem ég sá þegar að við vörum á leiðinni útaf þessum stað og get ég eiginlega sagt að þetta hlýtur að teljast hápunktur þessa kvölds (ekki það að kvöldið hafi ekki verið gaman en þessi gella var bara einum of myndarleg)

Ég verð bara að segja fyrir mitt leiti að þá skemmti ég mér alveg prýðilega og held ég að maður eigi eftir að hafa það bara nokkuð gott hérna í Prag með öllum þessum skiptinemum.

Því bið ég bara að heilsa heim og skilið kveðju til allra sem ég þekki.

kveðja, fulli gaurinn í Prag

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 13:37:23 / tigurinn

Hugleiðing

Ég á í smá hugleiðingum núna þessa stundina sem ég sit hérna á nærbuxunum í uppáhaldsstólnum mínum í íbúðinni minni í Prag.

Hvers vegna er verið að bjóða mér uppá skóla sem ætlar ekki að kenna mér neitt, ég var að fá stundaskránna mína í skólanum hérna úti og þeir kúrsar sem að ég ætla að taka byrja sumir hverjir ekki fyrr en í nóvember og svo er þetta sett þannig upp að ég verð í fríi núna 5 daga í viku af 7 sem sagt bara 2 skóladagar í viku.

Hvusslags eiginlega kennsla er þetta.... á maður ekkert að fá að læra hérna úti.... ég meina marr... bara á ekki til orð.....


Nei annars er ég nú bara að grínast ;) finnst þetta eiginlega bara alveg frábært að hafa þetta svona. Þurfa ekkert að vera að stressa sig of mikið á því að mæta í skólann og geta bara tekið lífinu með ró og næði, sofið út og gert það sem maður vill og vera ekki bundin af einhverjum skóla og lærdómi.

Annars er það að frétta af okkur Prag búum að Tommi vinur hans Gísla er farinn heim þannig að við erum bara orðnir 2 eftir hérna í kotinu og erum bara að taka því með ró, stefnir í að fyrsti skóladagurinn verði á morgun og verður gaman að sjá hvort og hvaða liði maður verður með í tíma.

Bið að heilsa öllum heim á fróni,

kv, D&G

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 06:21:28 / tigurinn

Allt bú.....

Jæja þá er víst allt búið. Afmælisdagurinn hans Gísla á enda kominn, þó svo að hann hafi formlega endaði fyrir mörgum klst síðan þá eru við ekkert að gera veður útaf því hérna í Prag.

En síðan ég skildi við ykkur síðast hefur ýmislegt gerst, eins og það að ég Tommi og Þóra ( Þóra Þruma eins og við vinir hennar þekkjum hana) skelltum okkur á "besta pizzastað í Prag" samkvæmt einhverju tímariti sem að Gísli las.





Veit ekki hvort að þetta voru bestu pissur sem ég hef smakkað, en þær voru bara alveg asskoti fínar.

En það sem var lang best var það að þjónarnir sungur afmælissönginn fyrir Gísla (búinn að því) og færðu honum afmælisköku (ekki með kertum eins og mín var) og fór Gísli ansi mikið hjá sér við þessa athöfn.



Eftir þetta þá kvaddi Þóra Þruma okkur, að vísu ekki fyrr en hún hafði fengið sér bjór á þessum bar.....

Efitr það þá héldum við partýljónin á nokkra staði og enduðum með að finna ansi góðan stað þar sem að stemmarinn var bara alveg prýðilegur. Sá stemmari náðist því miður ekki á filmu en hann verður vonandi festur á filmu áður en erlendisdvöl undirritaðs líkur.








Að sjálfsögðu endaði kvöldið á því að maður fékk sér eitthvað að éta áður en maður fór heim og má hér sjá sýnishörn af því sem að Gísli og Tommi pöntuðu sér.....








Annars biðjum við bara að heilsa hérna frá Prag og bjóðum öllum þeim sem vija koma í heimsókn velkomnar.

kv, D&G

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 17:33:58 / tigurinn

Hann á afmæli í dag...

Hann á afmæli í dag
Hann á afmæli hann Gísli
Hann á afmæli í dag

Til hamingju með daginn Gísli minn.

Það er naumast að maður er að fara að breytast í húsmóður hérna úti. Gísli og Tommi skelltu sér í 4 klst göngutúr núna í dag og á meðan þá fór ég og vaskaði upp, ryksugaði, sett í þvottavél, fór útí búð að kaupa mjólk og vodka (þið vitið þetta helsta sem mann vantar) og bakaði svo köku fyrir afmælisbarnið.

Kökubaksturinn gekk frekar illa þar sem að við erum ekki með neinn ofn og varð ég því að notast við tvær gashellur og potta, en ég held að afraksturinn hafi bara verið alveg ágætur. Allavegana var afmælisbarnið bara eitt stórt bros yfir því að fá köku á afmælisdaginn og ekki bara köku heldur köku með afmæliskertum, (var ekki til talan tveir þannig að ég varð að föndra smá og búa til tvo úr átta, þess vegna lítur þetta svona einkennilega út) en hvað gerir maður ekki fyrir vini sína.

kveðja frá húsmóðurinn og afmælis"barninu" í Prag
D&G



» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 05:54:09 / tigurinn

Svaka fjör

Núna er allt að gerast... ég sit hérna með tölvuna í fanginu og veit ekki hvort ð Tommi vinur hans Gísla er að meina þetta með leikinn eða ekki og því fer ég bara að leita að fleiri höfuðborgum (vorum sem sagt í Hvað heitir Höguðborgin-leiknum) Tommi er skuggalega góður í honum enda var maðurinn i Gettu Betur liðinu.

En burt séð frá því þá er dagurinn í dag búinn að vera alveg brilljant, á birjaði á því að skella mér í ræktina af því að Gísli svaf yfir sig og gleymdi að vekja mig til að mæta í þessa kastala ferð.

Því fór ég bara í ræktina og svo í sund og á meðan fóru Gísli og Tommi að kaupa miða á leikinn sem við svo skelltum okkur á; Sparta Prague - Hearts

Leikurinn endaði 0-0 sem þýðir það að Sparta er komið áfram og við gætum fengiðm eitthvað svaðalegt lið ú næst umferð og ætlum við bókað á völlin í þeirri umferð ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 08:13:28 / tigurinn

Næsti skóladagur

Ég sá að Katrín var búin að commenta og vildi fá fréttir af næsta skóladegi, þar sem að við erum ekki ennþá búnir að ná að jafna okkur á þessum fyrsta degi þá höfum við ekkert mætt í skólann aftur :S  fyrir utan það þegar að við ætluðum að láta skrá okkur inní landið og fórum í einhvern svaka túr hingað og þangað og enduðum á The Foreign Police Department en þá kom í ljós að við þurftum að hafa vegabréfin okkar með okkur og þar sem að enginn hafði sagt okkur það þá vorum við náttúrlega ekki með þau.

Þannig að við erum víst ennþá ólöglegir innflytjendur hér í Prag (usss... ekki segja neinum)

Við ætluðum svo að vera svaka duglegir og mæta í einhverja Kastala ferð núna í morgun og var meira að segja hætt við fyllerí í gær til að geta verið ferskir og hressir í þessari ferð, en eins og þið sjáið kannski þá er ég að blogga þessa færslu klukkan 10:01 að staðartíma sem þýðir það að við sváfum yfir okkur og misstum af ferðinni 8|

Það er svo sem allt í lagi því að við getum farið í hana hvenær sem er og erum við því bara að spá í að gera gott út þessu og skella okkur á fótboltaleik í kvöld. Það er enginn smáleikur heldur, Sparta Prague-Hearts.

            
AC Sparta Praha        Heart of Midlothian

Þetta er úrslitaleikur um það hvort liðið kemst áfram í UEFA Cup þannig að við verðum að fara og hvetja okkar menn í Spörta.

Annað er svo sem ekki að frétta nema Tommi vinur hans Gísla kom í heimsókn í gær og verður hjá okkur fram á mánudag og svo á Gísli afmæli á laugardaginn, 26 ára kallinn, þannig að þá verður eitthvað svaðalegt húllumhæ.

kveðja frá yfirsofandi Prag,

D&G

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 19:12:31 / tigurinn

Skóladagurinn búinn

Fyrsta skóladeginum er nú loksins lokið, hann hófst fyrir allan aldir eða klukkan 9:30 í morgun eftir 40 mín Tram ferð og var honum ekki lokið fyrr en rétt fyrir klukkan 17:00 og vorum við því ekki komnir heim fyrr en um 6 leitið og sofnaði kallinn þá bara eins og sleggja þegar að hann kom innum dyrnar.

Það var ekki mikið gert til að byrja með í skólanum en heldur betur bætt upp fyrir það með því að gera útaf við okkur eftir hádeHérna má sjá Gísla ásamt hinum skipinemunum í skólanumgi. Þar mættum við í fyrsta tíman okkar sem var Tékkneska 101 og héldum við að við værum á leiðinni í eitthvað voðaleg einfalt og simplet en annað kom á daginn því að konan sem að kenndi okkur ætlaði svo alls ekki að taka þetta neinum vettlingatökum og vorum við Gísli bara orðnir kófsveittir áður en yfir lauk og var það helst sökum eigin fávisku frekar en einhverja glæsitakta kennarans við kennsluna.

Núna sitjum við bara hérna heima og erum ekki að gera neitt enda varla annað hægt eftir svona kennsludag.

Ætla rétt svo að vona að þetta verði ekki aftur eins dagur á morgun því að þá segi ég bara hingað og ekki lengra ( sem myndi örugglega ekki gagnast mér neitt því að kennarinn bannar manni að tala annað en Tékknesku og ég því miður kann ekki að segja það á því ágæta tungumáli) ;)

Ég bið ykkur því bara vel að lifa og vona að ég nái að gera slíkt hið sama í tímanum á morgun.

kveðja frá púlandi Prag,
D&G

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 34
Klukkan