Eye of the Tiger

Eye of the Tiger

19.02.2007 19:50:45 / tigurinn

- Jafnrétti -

Ég var að lesa moggann í gær og sá þar frétt sem að mér fannst svoldið spaugileg. Hún var í sjálfu sér ekkert spaugileg en mér fannst hún bara fyndin þegar að ég fór að hugsa um hana svona út frá jafnréttissjónarmiði og það að konur séu sífellt að berjast fyrir jöfnum kjörum og jöfnu launum sem er allt gott og blessað.

En það sem þessi frétt var um var að tvær konur höfðu verið teknar í Leifstöð fyrir að reyna að smygla inn einhverju magni af kókaíni til landsins. Taka má fram að þessar konur voru á fimmtugsaldri og þær voru ekki góðkunningjar lögrelguna rað sögn Eyjólfs Kristjánssonar, fulltrúa lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Þarna finnst mér vera komnar konur sem ættu að fara á forsíðu Mannlífs, Nýs Lífs og allra hinna konublaðanna sem gefin eru út hér á landi.

Ástæða þess að mér finnt þetta er sú að þetta eru konur sem eru að riðjast inná braut sem að hefur nær eingöngu verið stjórnað af karlmönnum, þær eru frömkvöðlar kvenna á þessu sviði. Ég persónulega man ekki síðast hvenær ég frétti af konu fremja einhverj alvarlegan glæp. En maður heyrir um það nær daglega þegar að einhverjir ólánsamir karlfuskar eru teknir með hitt og þetta dópið í tollinum.

Mér finnst að ef konur ætla að vera samvkæmar sjálfum sér þá ættu þær að gera þessu konum hátt hundir höfði því að þær eru ekki að fara hefðbundnar leiðir eins og allar hinar kvennréttindabaráttukonurnar, fara á alþingi, gerast forstjóri, stofna fyrirtæki eða hvað eina sem þær gera til að komast með tærnar þar sem karlmenn áður höfðu hælana. Þessar konur eru að riðjast inná braut sem að engar aðrar konur vilja koma nálægt þó svo að í þessari starfgrein séu nær eingöngu karlar.

Er það ekki takmark samtaka eins og Feminista félagsins og annara slíkra að jafna hlut karla og kvenna í öllu og engu? Er þá ekki gott að jafna hlut þeirra í glæpsamlegri starfsemi líka?

Ég meina ef við eigum öll að vera jöfn er þá ekki rétt að við séum jöfn á öllum sviðum en ekki bara einhverjum tilteknum sem að kvennréttindabaráttan ákveður.

Nei ég bara spyr !!


e.s.
Verð að taka eitt fram því ég var að kíkja inná mbl.is og sá þar tvær fréttir sem að sýna það að konur eru eitthvað að taka sig á í glæpastarfseminni. Önnur var um konu sem grunuð er um íkveikju á Hringbraut og hin um konu sem verið var að dæma fyrir að vera með töluvert magn fíkniefna á heimili sínu.

En betur má ef duga skal

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan